Ferðafélagið stendur fyrir gönguferð í Glerhallarvík föstudaginn 14. júlí n.k.
Þátttakendur koma sér sjálfir út að Reykjum á Reykjaströnd þaðan sem gengið verður af stað kl.20. Létt ganga í 2-3 klst. Góðir skór eru æskilegir því fjaran er grýtt. Allir velkomnir og ekkert þátttökugjald.
Fararstjóri verður hinn síúngi Hjalti Pálsson ritstjóri með meiru.