| Ferðaáætlun 2011 |
|
Almennt gildir um ferðir á vegum Ferðafélags Skagfirðinga að það áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ferðafélag Skagfirðinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar fyrir ferðir.
24. júní, 1 dagur Mæting á einkabílum við N1 Sauðárkróki kl. 19:00.
Lagt verður af stað sunnan við Skíðastaði, farið upp með Grímsá og upp að Óskatjörn. Farið verður upp á hábungu Tindastóls við Einhyrningog fetað sig eftir henni yfir í Reykjadal. Þar verður farið niður að Grettislaug, en tilvalið er að baða sig í henni eftir gönguna. Gert er ráð fyrir að gangan taki ca. 8 klst.
Verð: kr. 3.500.- (kr.2.000.- fyrir félagsmenn í Ferðafélagi Íslands)
Illugastaðir – Þverárvötn - Fossá Skór: 2 9. júlí, 1 dagur Gengið verður frá eyðibýlinu Illugastöðum á Laxárdal. Haldið norður Engjadal að fornbýlinu Skínanda. Þaðan verður haldið að Þverárvötnum og Miðá fylgt að Fosseli. Þar rétt við eru fallegir fossar og stuðlaberg. Loks verður gengið með Fossá til sjávar. Verð: kr. 3.500.- (kr. 2.000.- fyrir félagsmenn í Ferðafélagi Íslands)
Jarðfræðiferð í Kotagil og Sæmundarhlíð Skór: 1
23. júlí, 1 dagur Kotagil er mikið árgljúfur í Norðurárdal í Skagafirði. Þar er fróðleg opna inn í elsta skeið jarðsögunnar í Skagafirði (Tertíer tímabilið) og í uppbyggingu fjallanna á Tröllaskaga. Markmiðið er keyra fram í Norðurárdal, ganga inn í gilið og skoða sig þar um. Þar má sjá merkilegan jarðlagastafla og finna ummerki um fornskóg (steingervinga). Spáð verður í spilin og rætt um þennan tíma. Við Kotagil má sjá einnig sjá ummerki um mikla vatnavexti sem urðu í Kotá árið 1954 með tilheyrandi skriðuföllum og lögðu bæinn Ytri-Kot í eyði. Á heimleið verður komið við í Sæmundarhlíð og annars konar jarðmyndanir skoðaðar sem mynduðust á síðasta jökulskeiði ísaldar. Þar verður rætt stuttlega um ísöldina í Skagafirði. Mögulega eitt til tvö stopp til viðbótar ef tími leyfir og áhugi er fyrir hendi. Verð: kr. 3.000.- (kr. 2.000.- fyrir félagsmenn í Ferðafélagi Íslands)
Kálfárdalur – Trölli – Kálfárdalur Skór: 1 2. október, 1 dagur
Mæting á einkabílum að N1 Sauðárkróki kl. 09:00. Verð: kr. 1.000.- (kr. 500.- fyrir félagsmenn í Ferðafélagi Íslands)
|