| Ferðaskálar |
Skálareglur Ferðafélags SkagfirðingaÞeir sem hafa pantað og samið við FFS um afnot af skálanum hafa forgangsrétt að gistirými. Verið velkomin, en gangið vel um skálann, búnað allan og gætið þess að allt sé hreint þegar farið er. Munið að greiða skálagjöldin skilvíslega - sjá reglur þar um (og við skálabaukinn). Gestum ber að taka tillit til annarra. Halda ber þá reglu að svefnró sé frá 24:00 - 07:00. Reykingar eru Fara skal gætilega með eld. Eingöngu er leyfilegt að nota gas- og eldunartæki í eldhúsi. Þar sem raflýsing er verður að muna að slökkva öll ljós við brottför. Gangið vel um útikamar og skiljið ekki dyr hans eftir opnar. Óheimilt er að hafa hunda eða önnur gæludýr innandyra. Þau geta valdið óþrifum og Engin sorphirða er á staðnum! Takið því allt sorp með ykkur til byggða. Lokið gluggum og gætið þess að útihurð falli vel að stöfum þegar skálinn er yfirgefinn. Hestamenn eru, af gefnu tilefni, beðnir um að fara ekki með hesta sína inn á skálaflötina Vinsamlega ritið í gestabókina: nafn, heimili, ásamt komu- og brottfarartíma. Þeir sem brjóta skálareglurnar fyrirgera rétti sínum til að nota aðstöðu þessa. |