|
Staður og leiðarlýsing: Hildarsel, byggður 1990, er í um 340 m.y.s., austan Jökulsár í Austurdal í Skagafirði, 8 km þægilega gönguleið fyrir framan kirkjustaðinn og eyðibýlið Ábæ. Ábæjará og Tinná eru með göngubrúm en annars aðeins smálækir á leiðinni. Fært á fjallareiðhjóli og skemmtileg reiðleið. Frá Hildarseli eru um 5 km fram í Fögruhlíð einstaka náttúruperlu með birkiskógi í 350-500 m.y.s. þar sem hæstu trén eru um 7 m á hæð. Gömul "kaupstaðar"- og gönguleið liggur um Nýjabæjarfjall að Villingadal í Eyjafirði. Um Varmahlíð veg 752 og 758 að Ábæ eru um 50 km. Ath. Ekki er fært fyrir litla/lága fólksbíla frá Monikubrú að Ábæ.
Meðeigendur FFS eru upprekstrarfélag Akrahrepps og landeigendur og eigendur að hestaaðstöðu.
Aðstaða: 16 manns í kojum 20 á svefnlofti - Gönguskáli - Vatn í læk/krana 50 m frá skála. Raflýsing, hesthús og hestahólf 80 m frá skála. Skálinn er ekki læstur.
Staðsetning: N 65°15,330´ V 18°43,910´

|