Könnun

Ættlar þú að ganga á fjöll í sumar
 

Innskráning



Ferðafélag Skagfirðinga
Fimmtudagur, 12 Október 2006 10:00
Ferðafélag Skagfirðinga var stofnað árið 1971 í framhaldi af byggingu brúar yfir Jökulsá austari skammt frá Laugarfelli.

Fyrsta verkefni félgsins var bygging Ingólfsskála, en skálinn er nefndur eftir fyrsta formanni félagsins, ingólfi Nikodemussyni sem var m.a. aðalhvatamaðurinn að stofnun félagsins.  Sjá nánar um stofnun félagsins annarsstaðar á síðunni.

Félagið er deild í Ferðafélagi Íslands.

FS á og rekur fjóra skála sem nánar má fræðast um hér á síðunni.  Þeir eru allir raflýstir með sólarrafhlöðu.  Gisting er pöntuð hjá Önnu Hjartardóttur, sími 453-5900 á skrifstofutíma og 864-5889 og Ágústi Guðmundssyni sími 862-5907.  Einnig gefa aðrir stjórnarmenn upplýsingar um skálana eftir þörfum.