Könnun

Ættlar þú að ganga á fjöll í sumar
 

Innskráning



Miðnætur kajakróður í Drangey
Þriðjudagur, 16 Júní 2009 22:56

Skemmtilegar myndir voru að koma inn á myndasíðuna frá kajakferðinni föstudaginn 12. júní. 
Það var meiri órói í sjónum en menn bjuggust við, ferðin tók aðeins lengri tíma fyrir vikið en var einkar skemmtileg þar sem Skagafjörðurinn skartaði sínu fegursta í miðnætursólinni.
Lagt var í hann rétt fyrir miðnætti frá Reykjaströnd og þaðan siglt beinustu leið út í Drangey, eða þar um bil þar sem hafstraumurinn þrýsti hópnum í dágóðan sveig í suður. Með í för var Björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Zodiac-inum Krók-5. Þegar var komið útí Drangey var byrjað á því að heilsa uppá kerlinguna, og svo landað í fjörunni við Hæringshlaup útsunnanvert á eynni. Þar var gert stutt stopp þar sem ræðarar gæddu sér á nesti og hlustuðu á Viggó segja áhugaverðar sögur um eyjuna. Endurnærðir lögðu svo ræðarar í hann aftur og byrjuðu á því að sigla í kringum eyjuna. Róið var suður með og svo austan við að Dauðs manns haugi, og þaðan að Ólafssigum. Þar mátti sjá glitta í Karlinn á hægri hönd. Svo var róið framhjá Háu sigum og að Heiðnavík. Þaðan var svo siglt að Lambhöfða og svo inní Uppgönguvík vestan megin á eynni. Ræðarar hægðu ferðina í Uppgönguvíkinni og virtu víkina fyrir sér ásamt því að skoða Uppgöngu. Þaðan var svo siglt meðfram Lundhöfðanum og stefnan tekin beint aftur að Reykjaströnd. Árarnar voru teknar Grettistaki á leiðinni til baka og siglt rakleiðis upp að Reykjaströnd. Ekki var svo úr vegi að skella sér í Grettislaug og hvíla lúin bein eftir róðurinn. Ferðalangar voru mjög ánægðir með ferðina, og ákveðið var að önnur slík ferð yrði tekin að ári.

 

Drangey

Tíbrá frá Tindastóli

titrar um rastir þrjár;

margt sér á miðjum firði

Mælifellshnjúkur blár.

 

Þar rís Drangey úr djúpi,

dunar af fuglasöng

bjargið, og báðum megin

beljandi hvalaþröng.

 

Einn gengur hrútur í eynni,

Illugi Bjargi frá

dapur situr daga langa

dauðvona bróður hjá.

Jónas Hallgrímsson