Könnun

Ættlar þú að ganga á fjöll í sumar
 

Innskráning



Í fótspor Jónasar Hallgrímssonar - yfir Nýjabæjarfjall 25. júlí
Mánudagur, 06 Júlí 2009 08:11

Ferðafélagið Hörgur og Ferðafélag Skagfirðinga auglýsa gönguferð yfir Nýjabæjarfjall,  í fótspor Jónasar Hallgrímssonar, laugardaginn 25. júlí n.k.

Þetta er nokkuð erfið ganga og krefst þess að þátttakendur séu í sæmilegri æfingu.  Göngutími er áætlaður um 12 klst. frá Skatastöðum í Austurdal yfir í Villingadal í Eyjafirði.  Yfir Jökulsá austari verður farið í kláfinum við Skatastaði, þaðan verður gengið framhjá Ábæ um Austudal inn að Tinnárseli. Þá liggur leið inn Tinnárdal og upp á Nýjabæjarfjall meðfram Illagili innst á dalnum.  Eftir fjallinu verður gengið að mynni Sverrisdals,  þar niður og komið að Villingadal þar sem rúta bíður göngumanna. Gengið er í u.þ.b. 1 100 m hæð yfir sjávarmáli þar sem hæst er.
Nauðsynlegur búnaður er m.a. góðir gönguskór, skjólfatnaður og nesti.  Fyrirkomulag verður þannig að þátttakendur safnast saman í Varmahlíð á laugardagsmorgun kl. 06.00 og geta geymt bíla þar. Þaðan verður ekið í rútu fram í Skatastaði. Frá Villingadal verður göngufólkinu ekið í rútu aftur til Varmahlíðar.  Þátttökugjald er kr. 5.000.
Fararstjórar verða Bjarni Guðleifsson og Ágúst Guðmundsson. Skráningar er best að senda á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Einnig má hringja í síma 862 5907  (Ágúst) og  692 6826 (Bjarni)  sem veita nánari upplýsingar ef þörf krefur.
Ferðin er farin til minningar um að nú eru liðin um 170 ár síðan Jónas Hallgrímsson fór í afdrifaríka ferð eftir þessari gömlu þjóðleið.  Athugið að fyrirvari er gerður á um að veður verði þokkalegt.

Ferðafélagið Hörgur og Ferðafélag Skagfirðinga