|
Þriðjudagur, 27 Október 2009 10:50 |
|
Föstudaginn 16. október s.l. stóð stjórn FS fyrir viðhaldsferð fram í Hildarsel. Með í ferðinni voru Hjalti Pálsson, Snorri Styrkársson, Sigurþór Hjörleifsson heiðursfélagi FS, Björn Svavarsson, Sigurlaug Ebba Kristjánsdóttir, Jóhann Rögnvaldsson, Birgir Friðriksson og Óskar Halldórsson, Elín Björnsdóttir, Sigurður Sigfússon, Stefán Ingi Sigurðsson og Ágúst Guðmundsson. Frekar lítið var í ánum og gekk því ferðin vel. Voru gasbirgðir endurnýjaðar og skálinn skúraður. Að þrifunum kom aðallega fjölskyldan í Kvistholti. Alltaf kemur á óvart hversu mikið rusl gestir skilja eftir sig. Annars er umgengni um skála FS yfirleitt til fyrirmyndar. Skálinn að Hildarseli var málaður fyrir tveimur árum. Ánægjulegt var að sjá hversu vel hefur til tekist, en veggir voru sem nýmálaðir. Snorri kom sterkur inn og grillaði læri ofan í mannskapinn. Matarlyst leiðangursmanna reyndist í besta lagi. Það var mál manna þarna framfrá að áhugavert væri að styrkja undirstöður skálans, en hann á það til að hreyfast í suðvestan átt. Leiðangursmenn héldu heim á leið á laugardag. Kók og pylsa í Varmahlíð.
Ágúst Guðmundsson
|