Könnun
Innskráning
| Gönguferð Illugastaðir – Þverárvötn - Fossá 17. júlí |
| Fimmtudagur, 08 Júlí 2010 14:07 |
|
Ferðafélag Skagfirðinga auglýsir gönguferð laugardaginn 17. júlí n.k. Gengið verður frá Illugastöðum á Laxárdal ytri, norður Engjadal. Þar er m.a. að sjá tóftir fornbýlisins Skínanda. Áfram verður haldið norður eftir, vestan megin við Bjarnarfell og upptök Fossár fundin. Þaðan að eyðibýlinu Fossseli. Fallegt stuðlaberg er við fossa í Miðá þar sem áin sameinast Fossá. Loks verður Fossánni fylgt til sjávar. Göngutími er áætlaður um 5-6 klst og vegalengd um 20 km. Athugið að fyrirvari er gerður á um að veður verði þokkalegt. Illugastaðir – Þverárvötn - Fossá Skór: 2
|
