Lög FS Skoða sem PDF skjal Prenta út

Lög Ferðafélags Skagfirðinga   

1. gr.

Félagið heitir Ferðafélag Skagfirðinga, er skammstafist F.S. og er deild í Ferðafélagi Íslands. Heimili þess og varnarþing er á Sauðárkróki.

2. gr. 

Tilgangur félagsins er að stuðla að ferðalögum um byggðir og óbyggðir landsins. Kynna eftir föngum gróður, dýralíf, jarðfræði og sögu staða og svæða, sem ferðast er um. Gangast fyrir aukinni ferðamenningu og bættri umgengni áningarstaða. Beita sér fyrir viðhaldi leiða um óbyggðir og merkingu þeirra. Leggja nýjar slóðir til staða, sem skoðunarverðir eru og vinna gegn því að ekið sé á einum stað í dag en öðrum á morgun, ein leið að sama marki. Stefna að því að  koma upp sæluhúsi á leiðinni milli Sprengisands og Kjalar norðan Hofsjökuls og víðar eftir ástæðum.          

 

3. gr. 

Félagar geta allir orðið sem búa í Skagafjarðasýslu og Sauðárkrókskaupstað, á hvaða aldri sem er. Félagsgjald verði ákveðið á stofnfundi, annars af aðalfundi.          

 

4. gr. 

Stjórn félagsins skal skipuð 5 mönnum og þremur til vara, kosnum leynilegri kosningu. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórnin er kjörin til tveggja ára í senn og ganga til skiptis tveir og þrír úr, þannig að tveir ganga úr á fyrsta aðalfundi, en þrír á öðrum. Í fyrsta sinn ganga úr stjórn féhirðir og annar meðstjórnandi.           

 

5. gr. 

Aðalfundur sé haldinn í febrúar ár hvert. Til aðalfundar skal boða með 14 daga fyrirvara þannig að fundarboð er sent ákveðnum manni í hverjum hreppi og sér hann um dreifingu þess innan síns hrepps. Á Sauðárkróki með auglýsingu á áberandi stöðum. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.Dagskrá aðalfundar fari fram sem hér segir: 

1.                  Skýrt frá framkvæmdum á árinu sem leið.

2.                  Lagðir fram endurskoðaðir reikningar og skýrt frá fjárhag félagsins.

3.                  Kosin stjórn samkvæmt 4. gr. félagslaga. Kosnir tveir endurskoðendur

                     og einn til vara. Einnig kosið í fastar nefndir.

4.                  Önnur mál. 

6. gr. 

Lögum þessum má breyta á aðalfundi, og skal þess getið í fundarboði og ræður meirhluti aðalfundar.              

 


Lögin þannig samþykkt á stofnfundi í bæjarþingsalnum á Sauðárkróki þann 27. desember 1970.