|
Ferðaáæltun Ferðafélags Íslands |
|
Þriðjudagur, 24 Febrúar 2009 15:28 |
|
Út er kominn ferðabæklingur með ferðaáætlunum aðildarfélaga Ferðafélags Íslands m.a. Ferðafélagi Skagfirðinga.
Slóðin á ferðabæklinginn er http://www.fi.is/files/FI2009_1963476049.pdf |
|
|
Þriðjudagur, 24 Febrúar 2009 15:25 |
Hér koma dálitlar upplýsingar um gönguferðirnar niður Austurdalinn.
Þessar ferðir eru fyrir alla sem eru sæmilega á sig komnir, alls ekki bara fyrir vant göngufólk. Yngsti þátttakandinn hingað til er átta ára og sá elsti hátt á áttræðisaldri. Ferðatilhögunin er sem hér segir í aðalatriðum.
Lagt er af stað frá Bakkaflöt kl. 16:00 á föstudegi og ekið til suðurs, fram gamla Lýtingsstaðahreppinn (inn til landsins hér fyrir norðan) og fram í Vesturdal. Úr Vesturdal er haldið upp á Hofsafrétt og áfram í Laugarfell þar sem höfð er stutt viðdvöl. Þaðan er ekið út í Grána við Geldingsá þar sem gist er fyrri nóttina. Ferðin frá Varmahlíð í Grána tekur um 4 ½ -5 tíma. Í Grána er gas og aðstaða til að hita sér, 9 manns geta gist inni, aðrir sofa í tjöldum. Bíllinn sem ekur okkur í Grána bíður til morguns og tekur tjöld, svefnpoka og annað sem fólk vill losa sig við til baka.
|
|
Lesa meira...
|
|
Þriðjudagur, 16 Desember 2008 16:21 |
|
Nýja ferðanefnd Ferðafélags Skagfirðinga skipa:
Pálína Ósk Hraundal
Hallbjörn Björnsson
Kári Þorsteinsson
|
|
Fimmtudagur, 12 Október 2006 10:00 |
Ferðafélag Skagfirðinga var stofnað árið 1971 í framhaldi af byggingu brúar yfir Jökulsá austari skammt frá Laugarfelli.
Fyrsta verkefni félgsins var bygging Ingólfsskála, en skálinn er nefndur eftir fyrsta formanni félagsins, ingólfi Nikodemussyni sem var m.a. aðalhvatamaðurinn að stofnun félagsins. Sjá nánar um stofnun félagsins annarsstaðar á síðunni.
Félagið er deild í Ferðafélagi Íslands.
FS á og rekur fjóra skála sem nánar má fræðast um hér á síðunni. Þeir eru allir raflýstir með sólarrafhlöðu. Gisting er pöntuð hjá Önnu Hjartardóttur, sími 453-5900 á skrifstofutíma og 864-5889 og Ágústi Guðmundssyni sími 862-5907. Einnig gefa aðrir stjórnarmenn upplýsingar um skálana eftir þörfum.
|
|
Gaman væri að allir sæu sér fært að taka þátt í skoðunarkönnunini. Það gæti verið vettfangur til að kjósa um hitt og þetta. |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 3 af 3 |