Könnun

Ættlar þú að ganga á fjöll í sumar
 

Innskráning



Miðnætur kajakróður í Drangey
Þriðjudagur, 16 Júní 2009 22:56

Skemmtilegar myndir voru að koma inn á myndasíðuna frá kajakferðinni föstudaginn 12. júní. 
Það var meiri órói í sjónum en menn bjuggust við, ferðin tók aðeins lengri tíma fyrir vikið en var einkar skemmtileg þar sem Skagafjörðurinn skartaði sínu fegursta í miðnætursólinni.
Lagt var í hann rétt fyrir miðnætti frá Reykjaströnd og þaðan siglt beinustu leið út í Drangey, eða þar um bil þar sem hafstraumurinn þrýsti hópnum í dágóðan sveig í suður. Með í för var Björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Zodiac-inum Krók-5. Þegar var komið útí Drangey var byrjað á því að heilsa uppá kerlinguna, og svo landað í fjörunni við Hæringshlaup útsunnanvert á eynni. Þar var gert stutt stopp þar sem ræðarar gæddu sér á nesti og hlustuðu á Viggó segja áhugaverðar sögur um eyjuna. Endurnærðir lögðu svo ræðarar í hann aftur og byrjuðu á því að sigla í kringum eyjuna. Róið var suður með og svo austan við að Dauðs manns haugi, og þaðan að Ólafssigum. Þar mátti sjá glitta í Karlinn á hægri hönd. Svo var róið framhjá Háu sigum og að Heiðnavík. Þaðan var svo siglt að Lambhöfða og svo inní Uppgönguvík vestan megin á eynni. Ræðarar hægðu ferðina í Uppgönguvíkinni og virtu víkina fyrir sér ásamt því að skoða Uppgöngu. Þaðan var svo siglt meðfram Lundhöfðanum og stefnan tekin beint aftur að Reykjaströnd. Árarnar voru teknar Grettistaki á leiðinni til baka og siglt rakleiðis upp að Reykjaströnd. Ekki var svo úr vegi að skella sér í Grettislaug og hvíla lúin bein eftir róðurinn. Ferðalangar voru mjög ánægðir með ferðina, og ákveðið var að önnur slík ferð yrði tekin að ári.

 

Drangey

Tíbrá frá Tindastóli

titrar um rastir þrjár;

margt sér á miðjum firði

Mælifellshnjúkur blár.

 

Þar rís Drangey úr djúpi,

dunar af fuglasöng

bjargið, og báðum megin

beljandi hvalaþröng.

 

Einn gengur hrútur í eynni,

Illugi Bjargi frá

dapur situr daga langa

dauðvona bróður hjá.

Jónas Hallgrímsson

 
Gilsbakki-Ábær-Skatastaðir 20. júní
Sunnudagur, 07 Júní 2009 16:28

Þátttakendur koma sér sjálfir að Gilsbakka og þar hefst gangan.
Þaðan er gengið sem leið liggur í Ábæ. Frá Ábæ er gengið að kláfnum við Skatastaði og farið yfir Jökulsá- eystri. Hópurinn er sóttur í Skatastaði og honum ekið í Varmahlíð.
 

Þægileg ganga í fallegu umhverfi.  Fararstjóri er Bjarni Maronsson.  Verð: 2500 krónur á mann eldri en 15 ára, frítt fyrir 15 ára og yngri.

 

Skráning þarf að berast inn fyrir 17. júní í síma 865-5309 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Miðnæturferð í Drangey á Kayak
Föstudagur, 29 Maí 2009 00:00

Næstkomandi 12. júní er miðnæturferð í Drangey á kayak á vegum FFS.

Mæting á einkabílum við Grettislaug á Reykjaströnd kl. 23:00, þaðan eru bátarnir sjósettir frá fjörunni. Róið er út í Drangey og lent í fjörunni að sunnanverðu.  Þaðan verður siglt í kringum eyjuna, Heiðnaberg skoðað, farið inn í Uppgönguvík og þaðan siglt til baka að Reykjaströnd.    Þegar komið er að Reykjaströnd aftur þá eru hvíld lúin bein í Grettislaug.  Gert er ráð fyrir að siglingin taki 4-5 klst.  Athugið að gert er ráð fyrir að þátttakendur séu vanir kayak róðri.

Verð: 6.500 kr.  Innifalið: fararstjórn, fylgdarbátur af öryggisástæðum, aðgangur að Grettislaug.  Lágmarksþáttaka: 6 manns.
Kayak1
Skráning hjá :  Pálína Ósk í síma 865-5309 og Hallbirni Ægi í síma 864-2225

 

 
Gönguvikur á norðurlandi
Fimmtudagur, 28 Maí 2009 22:28

Ferðafélag Skagfirðinga tekur þátt í skemmtilegu gönguverkefni í ár.  Áfangastöðum á norðurlandi hefur verið skipt niður á vikur og við hlutum vikuna 27. júlí - 2. ágúst.

Þá verður gengið á hverjum degi í skemmtilegar göngur, allt frá mjög auðveldum göngum og upp í göngur sem taka örlítið meira á :)

Mánudagur 27. júlí kl 20:00 
Hegranesið (fuglaskoðun)
Leiðsögumaður:  Þórdís Vilhelmína Bragadóttir líffræðingur.

Þriðjudagur 28. júlí kl. 18:30
Þórðarhöfði
Leiðsögumaður  Pálína Ósk Hraundal.  Lágmarksþáttaka: 8 manns

Miðvikudagur 29. júlí kl. 20:00
Gvendarskál
Leiðsögumenn:  Pálína Ósk Hraundal og  Þórður Ingi Bjarnason. Lágmarksþáttaka: 8 manns


Fimmtudagur 30. júlí kl. 18:30
Molduxi 
Leiðsögumaður: Ísak Sigurjón Einarsson.  Lágmarksþáttaka: 8 manns

Föstudagur 31. júlí kl. 18:30
Að Fjalli ( Kolbeinsdalur)
Leiðsögumenn: Pálína Ósk Hraundal og  Þórður Ingi Bjarnason. Lágmarksþáttaka: 8 manns


Laugardagur 1. ágúst
Tindastóll ( koma niður hjá Grettislaug)
Tími og leiðsögumaður nánar kynnt síðar

Sunnudagur 2. ágúst
Mælifellshnjúkur
Tími og leiðsögumaður nánar kynnt síðar


Skráning fer fram í tölvupósti, sendið á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Nýr vefur
Þriðjudagur, 24 Febrúar 2009 15:34

Nýr vefur Ferðafélags Skagfirðinga að birtast 

Ferðafélag Skagfiðinga hefur nú endurnýjað vef sinn.  Markmiðið er að vera með vef sem er lifandi og veitir sem mestar upplýsingar um starfsemi félagsins á hverjum tíma.

Vefurinn er í þróun og enn á eftir að setja þó nokkuð af upplýsingum inná vefinn.  Þær munu koma smám saman á næstu vikum.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Síða 2 af 3